Þóra Margrét

LFC FAN NR. 1 !!!!!

21.07.2007 19:14:54 / Poolarinn

Speki

"Hver einstaklingur á samkvæmt náttúrunni rétt á að vera í friði með líf sitt og limi. Án þess að maðurinn sé eign sín getur hann ekki ekki verið hann sjálfur. Enginn getur ásælst þessa eign nema stríða um leið gegn náttúrunni og jafnrétti og réttlæti milli manna.
Þú og ég værum ekki til án þessa. Enginn maður ræður yfir rétti mínum og frelsi og ég ekki yfir rétti og frelsi nokkurs manns.."

Richard Overton


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 19:06:36 / Poolarinn

Nýtt blog

Ég er komin með nýtt blog og slóðin er www.dodda.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 16:11:53 / Poolarinn

Nenni þessu ekki lengur!!!!

Eins og margir hafa tekið eftir að þá er orðið langt síðan ég bloggaði síðast en málið er bara það að ég nenni þessu ekki lengur!!!

Það mjög lítið að frétta af mér. Ég er búin að vera vinna eins og vitleysingur þetta árið og ekki gert mikið meira en það. En ég er reyndar að fara til New York í lok mánaðarins að skoða hitt og þetta og versla auðvita e-h ;)

En jæja þá er þetta komið nóg og aldrei að vita hvort maður bloggi e-h síðar ef ég nenni.

Kv. Þóra Margrét


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 09:38:32 / Poolarinn

Orðin 22 ára!!!

Jæja þá er ég orðin 22 ára og bara orðin þokkalega gömul. Átti afmæli í gær 18. febrúar og var þetta bara frábær dagur, ég kíkti á skauta sem var smá tilbreyting (ekki búin að fara á skauta í nokkur ár) svo fékk ég auðvita köku, óskin mín rættist Liverpool vann man.utd 1-0 :lol: og svo um kvöldið bauð Davíð mér út að borða á Hafið bláa sem er geggjaður staður á Eyrabakka (mæli með honum).

Annars er ekki mikið búið ske hjá mér, fór 11. febrúar á árshátíð hjá Flugleiðum sem var bara geggjað, ég leigði mér kjól og fór í greiðslu og var geðveikt fín, Róbert reddaði okkur herbergi á Nordica á 9. hæð þar sem flottu herbergin eru og þar beið okkar kampavín, ostar, vínber, súkkulaði, jarðaber og konfekt (gott að eiga góða vini). Fordrykkurinn var haldin á Nordica og svo var farið í nýja salinn í Laugardalshöllinni og þar var matur og skemmtun langt fram á nótt. :!:

Kv. Þóra Margrét


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 20:12:48 / Poolarinn

Prinsessan þeirra Helgu og Bryngeirs!

Jæja núna á föstudaginn kíkti ég á Helgu og prinsessuna hennar :D sem er algjört krútt, með fullt af hári og rosa stór og falleg augu:!: Hún fæddist 12. janúar og var hvorki meira né minna en 17 merkur og 53 cm. (rosa stór stelpa) og núna er hún orðin 3ja vikna og heldur eiginlega haus (rosa dugleg stelpa ;)).

En jæja þá ætla ég að setja inn eina dúllu mynd af henni þannig að þið hin fáið að sjá hvað hún er nú mikið krútt :D

 

 

 

 

 

 

ps. Fleiri myndir koma svo seinna.

Kv. Þóra Margrét


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 09:39:21 / Poolarinn

Köben á morgun!!!

Jæja nú fer að koma að því ég og Sara erum að fara til Köben kl 8 í fyrramáli :D Við fáum að vera í nýju íbúðinni hjá Hildi og Árna þannig að við spörum okkur hótel (takk æðislega dulurnar mínar). En eins og allir vita sem þekkja okkur erum við auðvita að fara versla :lol:

Kv. Þóra Margrét


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 21:18:30 / Poolarinn

Lítil prinsessa fædd!!!

Þann 12 janúar eignuðust Helga og Bryngeir litla prinsessu :) sem er algjört krútt (búin að skoða hana).

Langaði bara að óska þeim til hamingju með að vera orðin mamma og pabbi :D

Kv. Þóra Margrét


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 21:31:52 / Poolarinn

Jólin eru að koma!!!!

Jæja þá eru jólin að skella á, ég er búin að kaupa allar jólagjafir og meira segja búin að pakka þeim inn :haha: og bara allt tilbúið, ég á reyndar eftir að þrífa heima :$ en það tekur ekki svo langan tíma. En svo á morgun ætla ég og mamma að fara baka smákökur sem verður geðveik stemming. :D
Eins og þið hafið séð er ég búin að vera mjög löt við að blogga :( en það er út af því ég er búin að vera vinna frekar mikið undafarið og svo verið bara að undirbúa jólin, kaupa jólagjafir og skreyta heima (búin að seta jólaseríur í alla gluggana). ;)
En á aðfangadag ætlum við Davíð að vera heima hjá mömmu og pabba en þar ætlar öll fjölskyldan að vera og það á eftir að verða sko fjör við verðum 13-14 manns. 8|
Ég verð að vinna á næturvakt á jóladag og nýársdag sem er bara allt í lagi því ég fæ ágætan pening út úr því. Þetta er í fyrsta skifti sem ég er að vinna um jólin og mér finnst bara allt í lagi svona einu sinni. ;)
Svo á fimmtudaginn kemur Hildur vinkona heim frá Köben :haha: og það verður bara fjör því ég ætla að draga hana með mér á djammið svo hitti ég líka Lísu í dag og hún var sko til í það líka þannig að það verður bara stemming. 8)
En jæja þá er bara að vona að snjórinn fari að láta sjá sig því það er miklu jólalegra að hafa snjóinn!! :)
             Jólakveðja Þóra Margrét


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 15:33:10 / Poolarinn

Allir að hjálpa!!!!

Ég skora á alla að HJÁLPA því það er að koma jól og allir eiga að geta haldið jól ekki bara við!!! Þannig að: HJÁLPIÐ!!!!! Hver króna skiptir máli hjá þessu fólki. www.sos.is

Kv. Þóra Margrét


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 17:20:27 / Poolarinn

Gaui 20 ára í dag!!

Langaði bara að óska litla bróðir til hamingju með daginn því hann er 20 ára í dag þann 8. nóv. og kemst loksins í ríkið sjálfur, húrra húrra :D

Kv. Þóra Margrét


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2005 21:01:16 / Poolarinn

Til hamingju með daginn í gær!!!

Í gær þann 5. nóvember urðu mágkonur mínar Anna og Guðný þrítugar og var haldið upp á það með stæl. Afmælið var haldið í sal sem pabbi þeirra á sem er hliðina á AB-varahlutum og var þar boðið upp á alls kyns veitinga t.d. snittur, mojito bollu, sex on the beach bollu og vodki. Svo um 11 leitið kom hljómsveit (Sólon) á staðinn og skemmti fólki. Það er óhætt að segja að mikið var um ölvun og fólk skemmti sér konunglega alla nóttina og held ég að flestir hafi verið soldið þunnir í dag, allavegana var mér ekki skemmt þegar ég vaknaði í morgun :S En það er líka langt síðan ég hef skemmt mér svona vel.

P.s. myndir úr veislunni eru komnar.

Kv. Þóra Margrét


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 17:23:27 / Poolarinn

Pabbi og Gísli eiga afmæli í dag!

Langaði bara að óska pabba mínum og Gísla frænda, bróðir hans pabba til hamingju með daginn, því þeir eru 58 ára gamlir í dag þann 26 okt. :D

Kv. Þóra Margrét


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2005 19:52:59 / Poolarinn

Halló halló

Jæja ég er búin að seta inn myndirnar frá San Francisco!!!! þær eru hérna vinstra megin undir myndir og mappan heitir San Francisco, góða skemmtun!!! ;)

Kv. Þóra Margrét


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 19:48:27 / Poolarinn

Komin heim frá San Francisco!!

Jæja nú er maður komin heim frá San Francisco því miður. :cry: Þetta er gjörsamlega mögnuð borg, fallegasta borg sem ég hef komið til. Þessi ferð var mjög vel heppnuð við fórum 15 saman.

Það var farið á leik í Amerískum fótbolta með 49ers sem var geðveik upplifun en versta að maður skildi ekkert reglunar, soldið fyndið. :lol: Svo var farið á Eagles tónleika sem var geðveikt fjör á, áður en ég fór á þessa tónleika vissi ég varla hverjir þeir voru en eftir að hafa hlustað á þá, á þessum tónleikur þá hafði ég heyrt flest öll lögin sem þeir spiluðu en hafði bara aldrei vitað hverjir spiluðu þessi lög, ég reyndar sofnaði í smá stund, var svo þreytt. :D Svo var auðvita farið og skoðað Alcatraz sem var alveg magnað en klefarnir voru frekar ógeðslegt og þar gat maður hlustað á söguna t.d. um mennina tvo sem grófu sig út með skeið og fundust aldrei aftur.
Svo að sjálfsögðu var kíkt í fullt af búðum m.a. The North Face :D (þar sem ég missti mig), Diesel (ótrúlegt enn satt keypti ekki neitt), Zara, Gap o.fl.
En jæja þá held ég sé búin að segja frá því helsta en myndir koma bráðlega. :$
P.s. það er strax byrjað að spá í næstu ferð sem verður í Köben 16-18 des ´05 :haha: :haha:

Kv. Þóra Margrét


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
23. febrúar 2012